Aðgerðin

Aðgerðin mín gekk vel. Hérna eru fleirri uplýsingar um hana og ferðina http://dori.ath.cx/boston

Aðgerð

Jæja mamma er alltaf jafn dugleg að skrifa. En núna styttist í aðgerðina mína, ég fer út 30 okt með pabba og afa Kristjáni. Aðgerðin er svo 1 nóv og ég ætti að vera kominn aftur á klakann 13 nóv.
Það vona bara allir að allt gangi sem best.  Mamma setur svo hérna inn fréttir af mér seinna.

Einn

Systir mín er í ferðalagi svo ég hef verið einn með mömmu og pabba. Ég virðist njóta þess ágætlega, en er pirraður á kvöldin sakna systur minnar sem er vön að sofa með mér. Það verður gaman að fá hana aftur.

Farinn að standa upp

Ég er orðin svakalega duglegur ég stend up við allt mögulegt. Eins er ég líka farinn að reyna að labba þegar einhver tekur í hendurnar mínar og aðstoðar mig. Þetta er bara allt að koma.

Brúðkaup mömmu og pabba

Ég virtist skemmta mér mjög vel í brúðkaupinu. Ég var skírður eins og systir mín. Eftir boðið fór ég Með ömmu Sigrúnu og afa Binna að gista.

Skrið

Ég er farinn að skríða út um allt. Ekki langt þangað til ég fer að labba hugsa ég. Mamma gleymdi alveg að skrifa um Jólin en þau voru mjög skemmtileg hjá mér. En miður hjá systu sem varð veik.

Veikur

Ég er búin að vera veikur. Frown Hef verið með stíflað nef og hósta. Ég er búin að vera inni í sex daga. En fékk að fara til ömmu og afa í Hamrahlíð í gær.

mamma löt að skrifa

Hefur lítið svosem gerst hjá mér. En ég er orðin svakalega duglegur að reyna að sitja og borða matinn minn. Mamma mín er orðin 26 ára og ég fékk líka að fara í afmælið hjá ömmu Sigrúnu.

Langamma og afi

Var hjá Langömmu og langafa í dag. Þau eru að æfa mig mjög mikið þegar ég er hjá þeim. Það er mjög gott fyrir mig, ég ligg á maganum og æfi mig að lyfta hausnum. Ég svaf reyndar messt af tímanum sem ég var í dag. Það var ekki erfitt að passa mig Glottandi

Afmæli

Ég er svo heppinn að fá að fara í afmæli þau eru svo skemmtileg. Systir mín hélt upp á afmæli sitt og ég fékk að vera. Ég svaf reyndar messt allan tíman og pældi ekkert í því að það væru gestir. Kannski á ég eftir að muna meira þegar hún verður 3 ára.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband