Kominn í heiminn.

Ég kom í heiminn 1. mars kl 23:52. Ég vó 1905 gr. Núna þremur mánuðum
síðar er ég kominn yfir 4 kg. Ég held ég hljóti að fá alla þessa
matarlyst úr föðurættinni hehe. Ég fæddist með gat á milli hjartahólfa,
það á víst ekki að há mér neitt. Ég er á lyfjum og fer til Hróðmars 1
sinni í mánuði. þegar ég verð um 10 kg þá verður gerð aðgerð og þetta
lagað. Hróðmar segist vera með mörg svona börn og þau séu öll í fínu
lagi í dag, sem er mjög gott. Það eru allir mjög ánægði með mig. Ég er
svo heppinn að  fá að fara til langafa og langömmu á morgun á meðan
Sigrún Björg systir mín er í sjúkraþjálfun.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband